Aðalvalmynd

Auglýsing

Lala

08. október 2007 klukkan 22:57
Í spilun byrjun bloggsins - The Jetset Life is gonna kill - My chemical romance
Löngun - vantar nýja skó 
:)

Já ég veit .. ég er ekki dugleg að blogga . Nenni því bara alls ekki alltaf ! En núna skal ég blogga ..
Ekkert að gerast samt, þannig það er ekkert að blogga um ;/  .. Fjarðaball á föstudaginn, Dalton eða e-ð að spila , Slappt. .. Samt maður hittir alla á Eskifirði .. það er allavegana ágætt :)
Svo verð ég nú að fara að fara til Akureyrar :) Hitta Öglu :) aye Agla ?  Fara á Skauta og sonna ^^    
Hef voðalega lítið að segja .. Eiginlega bara ekki neitt >.<
Búin að breyta herberginu aðeins (a) ..
Nenni ekki að blogga meira


Í spilun í enda bloggsins - Cemetery Drive - My Chemical Romance

                My Chemical Romance                
                                                                                    

Gerard Way
Frank Iero
Mikay Way
Ray Toro
Bob Bryar 
    <3 





Yup!

22. september 2007 klukkan 00:10
Í spilun byrjun bloggsins - If You Could See Into My Soul - Silverstein
Löngun - Pening og fleiri trommur og diska :)

Ekki dugleg við að blogga huh ? Neibb ég ætla bara að blogga núna :)
Hef bara verið í skólanum sko . ekkert merkilegt þannig séð :/  .  ég þreif trommusettið mitt áðan , núna er það alveg glandsandi svart :)  og hversu indælt er að spila á nýþrifið og glansandi trommusett Og að meira að segja fá 2 sinnum krampa eftir að hafa spilað frekar hraðan takt :)  indælt  ..

Svo vinna á morgun, eða sovna "vinna" . er að vinna fyrir skólann .  Selja e-ð í réttunum í fljótsdal :) gæti ekki verið meira sveitó ha ?  Svo mætir maður í ullarpeysu og ullarsokkum, vindbuxum og stigvélum og með baggaspotta utan um mitti ^^ .. eða nei er ekki svo sveitó :) 

Eeen :) svo fara í afmælið á morgun :) hjá Einari krúslu mús ! En ég meina það verða kökur þar og Gæsa-Pizza o.O  Hversu magnað :)  Ef það verður e-ð eftir það er að segja ! Ef þessir litlu krakkar borði ekki allt frá mér!  En er þetta bara komið gott að einhverju tilgangslausu :) ..

Í spilun í enda bloggsins - My Name is Cocain - Mínus

Blogg Flogg :)

14. september 2007 klukkan 11:36
Í spilun byrjun bloggsins - Bring The pain - Mindless Self Indulgence :)
Löngun- Pening og fara til Reykjavíkur^^


Langt síðan ég hef bloggaði :$   Hef bara einhvernveginn ekki nennt því :P  En Það hefur líka ekkert gerst hjá mér , Það gerist aldrei neitt hérna á Íslandi ! Allavegana það er engin skóliii í dag, út af einhverju :P  Þannig ég er bara heima að tjilla ^^ Sjúklega kalt inni og úti !  Íííííííiskalt ,brr ..

Svo bara tjilla um helgina, Kannski passa litlu frændur mína :) sætust krúslur í heiminun :) Ætla koma með eitt gullkorn sem litli frændi minn sem er að verða 5 ára sagði [ ég: Er katrín besta vinkona þín? .. Hann: uhm tjah, neiii, en sko, við eigum batterý ].. æji þetta var svo fyndið :)  Líka einhverntíman sat hann hjá mér:) [ Hann: Fokkjú og hundaæði.. Ég: haa ? hvað sagðirðu.. Hann: Elísa ég er bara að tala við sjálfan mig ].. Hann varð alveg sármóðgaður :).. Kannski finnst ykkur þetta ekkert fyndið, en mér finnst það ^^

Annars hef ég ekkert að segja er að spá í að fara að taka til eins og ég átti að gera (-_-).. blahh! nenni því ekki .. Er þá bara hætt :)

Í spilun í enda bloggsins - Smile In Your Sleep - Silverstein

Hakkísakk

30. ágúst 2007 klukkan 23:28

Í spilun byrjun bloggsins - Foot To The Throat - Lamb Of God :)
Löngun- Spila hakkísakk og snake-bite ^^

Mig langar að fara í hakkísakk
^^

Eitt annað tilgangslaust og alveg mjög ómerkilegt blogg :)..
Allavegan skólin bryjaður og gerðu e-ð fyrsta daginn sem ég man ekki hvað var :/... Svo sátum við 7 klukkutíma í rútu, að keyra á svona 5 km hraða :/   Og hlusta á kall sem labba eins og Mr.Bean.. En iPodinn bjargaði þeim málum
^^

Annars var ég að koma frá Brynju, Og við borðuðum okkur feitar af nammi (-_-), Og hengum örugglega í tölvunni allan tíman :) YouTube kom þar mikið við sögu, enda nota ég það svo sjaldan , því ekki séns að ég geti hroft á það hérna með þessa fkn ömurlega nettenginum :@  Svona er að búa í fkn ömurlegri sveit!

Veit svosum ekkert hvað ég á að segja :).. er svo ómerkileg sjálf að bloggin mín verða tvöfalt ómerkilegri :/ . Held ég ætli bara að enda þetta á mynd og viðlaginu í Örkin hans Nóa með Skyttunum
..

Í Spilun í enda Bloggsins - Örkin Hans Nóa - Skytturnar >.<


síðasta sandkornið í tímaglasið
síðasti dropinn sem að fyllir hafið
!
er á næstu grösum vitiði til
það verður einhver sem að hrekkur við
en enginn þorir fyrstur
enginn stekkur
!
einstaklingshyggjan verður okkar veiki hlekkur
þegar að örkin hans nóa sekkur(8)



Fengum að Spila með Dúkkulísunum ^^

25. ágúst 2007 klukkan 21:45
Í spilun - Pamela í Dallas - Dúkkulísurnar
band dagsins - Dúkkulísurnar Klárlega!

Löngun - Snake bite ^^
 


Jös ^^
Já, fyrsta svona alvöru bloggið mitt
:)
Í dag voru tónleikar :).. eða af því ég var í tónsmiðjunni (sem Dúkkulísurnar voru með)  og þar gerðist sá skemmtilegi hlutur að maður er komin í hljómsveit :)..Scran!
Í dag fengum við að spila á tónleikum með dúkkulísunum sem voru 25 ára
:).
Spiluðum Cover lag sem Dúkkulísurnar völdu fyrir okkar (frekar leiðgjarnt lag) Það var It's So Easy með Lindu Rondstadt , Svo Frumsamda lagið okkar :) sem heitir Palli Fer í Meikóver!
Gekk bara vel :P.. við erum Bestar ;). Svo spiluðu Vicki Pollard sem eru frá Hafnafirði þarna líka, Þau vour shit mikið góð :o Er að fíla þau í ræmur !

Svo eftir tónleikana Þá fórum við út að borða , Þar voru  ég, kara, aldís, þura, malen, steinnun svo einhverjar fleiri sem ég man ekki hvað þær heita, en allavegana voru þarna flestir úr Scran og HeeBeeGeeBee
:P

Svo fórum ég, kara og aldís út í grenjandi rigningu , elska rigningu, eina veðrið sem hræðir mig ekki :P.. svo fór aldís og við kara biðum úti í skítakulda eftir bróður mínum að koma og sækja okkur
:P...

En voða lega tilgangslaust blogg
>.<


Byrja að blogga ?!

24. ágúst 2007 klukkan 00:00

^^
Var svona að spá í að reyna að vera geðveikt svöl á því og byrja að blogga aftur ^^
Hef ekki staðið mig í því á seinustu síðum svo ekki búast eftir mjög miku frá mér 
:)
Annars Ef þetta gengur e-ð, það bara frábært :)
En ætla að reyna að gera e-ð í þessari síðu :)
Blee >.<